Óscar Puente, samgönguráðherra Spánar, hefur sagt af sér. Hann tilkynnti ákvörðun sína á spænska þinginu í kvöld þar sem hann bar vitni um tildrög lestarslyss sem varð í landinu í síðustu viku.
69 fórust og tugir slösuðust í slysinu sem varð í bænum Urda, sunnan við Madríd, þegar hraðlest ók á miklum hraða aftan á kyrrstæða lest með þeim afleiðingum að margir vagnar fóru út af sporinu.
Yfirvöld rannsaka slysið en talið er að tæknileg bilun og mannleg mistök hafi verið orsökin.
Annað alvarlegt lestarslys varð í landinu í janúar. Traust til lestarinnviða minnkaði eftir slysin.
,,Samgönguráðherra í landi eins og Spáni getur ekki setið áfram í embætti eftir tvö svo alvarleg slys á innan við ári," sagði Puente.
Stjórnarandstaðan fór fram á afsögn samgönguráðherrans eftir slysið og hefur gagnrýnt hann fyrir að leggja ofuráherslu á að kenna starfsmanni í stjórnstöð um. Gagnrýnendur hafa sagt að fjárfestingar í viðhaldi lestarkerfisins hafi ekki verið auknar í takti við aukinn fjölda farþega.