Yfirvöld á Spáni segjast ætla að gera allt sem í þeirra valdi standi til að endurvekja traust almennings á lestarkerfinu. Þessu lýsti samgönguráðherrann yfir í dag.
69 manns fórust í lestarslysi í síðustu viku. Annað alvarlegt lestarslys varð í landinu í janúar.
Traust til lestarinnviða hefur minnkað eftir slysin tvö. Slysið í síðustu viku hefur vakið mikið umtal í kosningabaráttu sem stendur yfir fyrir þingkosningar 29. nóvember. ,,Við ætlum að vinna sleitulaust að því að almenningur treysti hraðlestarkerfinu á ný," sagði samgönguráðherrann Oscar Puente á blaðamannafundi í dag.
Slysið í síðustu viku varð með þeim hætti að lest á vegum ríkisfyrirtækisins Renfe var ekið aftan á kyrrstæða lest á vegum fyrirtækisins Iryo í um 130 kílómetra fjarlægð frá Madríd. Rétt fyrir slysið fór sjálfvirkt viðvörunarkerfi í gang og því var för nokkurra lesta stöðvuð. Lest Renfe var leyft að halda áfram þrátt fyrir að tilkynnt hefði verið að ekki hefði tekist að koma Iryo-lestinni af stað.
Stjórnarandstaðan hefur farið fram á afsögn samgönguráðherrans eftir slysið og gagnrýnt hann fyrir að leggja ofuráherslu á að kenna starfsmanni í stjórnstöð lestarsamgangna um slysið. Félag lestarstjóra hefur boðað til verkfalla 10. og 12. nóvember. Félagið hefur gagnrýnt slæma vinnuaðstöðu og sagt innviðina lélega. Þá hafa gagnrýnendur sagt að fjárfestingar í viðhaldi hafi ekki verið auknar í takti við aukinn fjölda farþega.
Fréttin hefur verið uppfærð.