|
|
 |
|
| |
Gaman að fá að taka þátt í alvöru Hollywood-verkefni Hafsteinn er maður margra hatta í tónlistarbransanum. Hann vinnur í fullu starfi við tónlistarsköpun og kemur víða við. Á einum degi gæti hann t.d. verið að vinna að útsetningum fyrir tónleika, stýra upptökum á tónlist eða semja kvikmyndatónlist. Verkefnin sem tengjast kvikmyndunum eru fjölbreytt. Hann vann t.d. að tónlistinni í Bridget Jones: Mad About The Boy. ,,Það var ótrúlega skemmtilegt, við fengum að fara á Abbey Road og taka upp þar risasinfóníu. Það var ógeðslega gaman að fá að taka þátt í svona alvöru Hollywood," segir hann en verkefnið fékk hann í gegnum bandaríska tónlistarmanninn Dustin O'Halloran sem er búsettur hér á landi. Þú getur séð áhugavert viðtal við Hafstein sem og nýtt lag sem hann var að gefa út undir listamannsnafninu CeasTone í spilaranum hér að ofan.
02.11.2026 19:01
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |