RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Svona er riðill Íslands í Þjóðadeildinni

Ísland er í riðli með Danmörk, Ítalíu og Wales í Þjóðadeild kvenna í fótbolta 2027. Ísland er í A-deild Þjóðadeildar og var í þriðja styrkleikaflokki í drættinum.

Niðurstaðan í Þjóðadeildinni hefur bein áhrif á hvar lið verða í undankeppni EM 2029 sem fer fram í Þýskalandi. Ísland hefur farið á síðustu fimm Evrópumót, frá 2009.

Þjóðadeildin 2027 verður leikin frá febrúar til júní. Eftir það verður leikið til úrslita og í umspili um fall eða ris milli deilda í október og desember.

Góð niðurstaða

Það eru engin slök lið í A-deild en það má segja að Ísland hafi sloppið vel ef miðað er við styrkleikaröðun FIFA. Ísland fékk lægst skráða liðið á heimslistanum í öllum þremur styrkleikaflokkunum. Þá er Ísland næst sterkasta liðið í þriðja styrkleikaflokki, ef miðað er við heimslistann.

Riðlarnir í A-deild

Sæti á styrleikaröðun FIFA fyrir aftan land.

A1

Spánn - 1Noregur - 13Írland - 21Sviss - 26

Meðaltals sæti á FIFA lista: 15,25

A2

Frakkland - 6England - 4Austurríki - 25Portúgal - 24

Meðaltals sæti á FIFA lista: 14,75

A3 - riðill Íslands

Danmörk - 10Ítalía - 14Ísland - 16Wales - 31

Meðaltals sæti á FIFA lisat: 17,75

A4

Þýskaland - 3Holland - 11Svíþjóð - 8Skotland - 23

Meðaltals sæti á FIFA lista: 11,25

Svona er Þjóðadeildinni skipt:

A-deild: 16 liðB-deild: 16 liðC-deild: 22 lið

03.11.2026 12:36


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001168
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.