RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Vön því að vera búin undir ýmislegt

Á Haga á Barðaströnd búa hjónin María og Haraldur. Þau, eins og flestir í sveitinni, þurfa að gera ráð fyrir því að geta bjargað sér ef grunninnviðir bresta.

Flestir bæir í sveitinni eru með ljósavél í bílskúrnum sem má grípa til ef rafmagn fer. Á Haga er rafallinn tengdur við gamla bæinn. Það er ekki langt síðan hjónin þurftu síðast að grípa til þess að flytja sig yfir í gamla bæinn. ,,Við höfum oft þurft að gera það, brjótast í brjáluðu veðri hérna milli bæja," segir María.

Þau sjá til þess að nóg sé til af kertum, rafhlöðum og kveikjurum. Svo er nóg til af mat í tveimur frystikistum.

Almenningi er bent á að eiga nægar vistir í húsinu til að geta lifað á þeim í þrjá daga. Hjónin á Haga telja að þau gætu lifað á matnum í frystikistunni í þrjá mánuði hið minnsta, ef ekki ár.

03.11.2026 20:32


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001167
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.