Kaktus Einarsson x Rakel - The Decipherer
Fjórða og síðasta smáskífan áður en væntanleg hljómplata Kaktusar Einarssonar, Factoid Happiness, kemur út 18. september er með laginu The Decipherer. Lag og texti eftir Kaktus en söng- og tónlistarkonan Rakel Sigurðardóttir aðstoðar við flutninginn.
Undiraldan fimmtudaginn 3. september
Að venju ræður fjölbreytnin ríkjum í Undiröldunni þar sem er boðið upp á allt frá þjóðlaga-þungarokki og leikhúsrappi að hætti nútímavíkinga að gervigreindar-kántrískotnu glæparappi.
Kristinn Óli Haraldsson, Jakob Van Oosterhaut 0150 Kveðast á
Söngleikurinn Ormstunga sló í gegn á síðasta leikári og nú hefur tónlistin verið gefin út á streymisveitum. Eitt laganna úr sýningunni er Kveðast á, þar sem Kristinn Óli Haraldsson og Jakob Van Oosterhaut kveðast á.
Jakob Valby, Valby bræður - Stígðu leiðina heim
Stígðu leiðina heim með Jakob Valby fjallar um mann sem hefur lifað í undirheimum Reykjavíkur, umkringdur eiturlyfjum, vopnum, peningum og ofbeldi, en ákveður að slíta keðjuna og ganga í burtu. Gervigreindarverkfærið Suno var notað við gerð tónlistarinnar.
Sigríður Beinteinsdóttir - Stór orð
Tónlistarkonan Sigga Beinteins hefur sett gamalt lag með sér í nýjan búning. Lagið heitir Stór orð og er eftir Friðrik Karlsson, gítarhetju Mezzoforte. Sigga skilgreinir lagið sem kántrípopp.
Brek - Í krummafót
Eftir að hafa hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2022 fyrir fyrstu plötu sína kemur BREK nú með aðra plötu í fullri lengd. Hún heitir Ný spor í slóð og á henni eru 11 ný lög, samin á árunum 2021-2025. Í Krummafót er fjórða smáskífan af plötunni sem kemur út í heild þann 25. september.
Izleifur - Raunsær
Tónlistarmaðurinn Izleifur Eldur Illugason hefur sent frá sér smáskífuna Raunsær sem er fyrsta lagið af væntanlegri breiðskífu sem hann vinnur að og það er frumsamið.
Elvar Smári Júlíusson - Áhugaverðir tímar
Tónlistarmaðurinn Elvar Smári Júlíusson hefur sent frá sér lagið Áhugaverðir tímar sem hann skilgreinir sem nýklassík. Lagið er raftónlist, Elvar spilar á hljóðgervla en Emma Garðarsdóttir, Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir, Þórdís Gerður Jónsdóttir og Þórhildur Magnúsdóttir strjúka strengi.
Brotsjór - Year of the Tiger
Hljómsveitin Brotsjór hefur sent frá sér lagið Year of the Tiger sem þeir skilgreina sem síðrokk. Breki Steinn Mánason stjórnaði upptökum og spilar á gítar og bassa auk þess að útsetja strengi, Kristófer Nökkvi Sigurðsson spilar á trommur og Curver Thoroddsen masteraði.
Undiraldan þriðjudaginn 1. september
Að venju ræður fjölbreytnin ríkjum í Undiröldunni þar sem er boðið upp á allt frá þjóðlaga-þungarokki og leikhúsrappi að hætti nútímavíkinga að gervigreindar-kántrískotnu glæparappi.
HAM - Inni í höfði mér
HAM, hljómsveit allra landsmanna, er að leggja lokahönd á tvöfalda breiðskífu sem kemur út í nóvember. Platan hefur fengið nafnið Endalok alls og er framleidd af Arnari Guðjónssyni en í fyrsta söngli hennar, Inni í höfði mér, fá þeir Kristjönu Stefánsdóttur til að syngja með sér.
Stebbi JAK - Það er svo margt
Lagið Það er svo margt er á nýjustu sólóplötu Stebba JAK sem kom út um miðjan júní. Þetta er dreymið danspopp en að sögn Stefáns talar textinn vel inn í samfélagið eins og það er í dag, hefur verið og mun sennilega vera áfram, segir í tilkynningu.
Spacestation - Watching it Happen
Watching it happen er þriðja og síðasta smáskífa hljómsveitarinnar Spacestation af væntanlegri plötu, Who killed Spacestation? Lagið var tekið upp í Gróðurhúsinu í Breiðholti af Arnari Guðjónssyni sem hljóðblandaði það einnig og Alex Wharton hjá Abbey Road Studios í London masteraði.
Hoffman - Kolkrabbinn
Hjómsveitin Hoffman á sér yfir 20 ára sögu og var virk í íslensku tónlistarlífi á fyrsta áratug aldarinnar. Í dag kemur út lagið Kolkrabbinn af þriðju plötu sveitarinnar sem heitir Við.
Birgir Steinn og Diljá - Eltu drauminn
Tónlistarfólkið Birgir Steinn og Diljá hafa átt þó nokkur vinsæl lög í gegnum tíðina en að þessu sinni gera þau saman lagið Eltu drauminn. Lagið er úr væntanlegri kvikmynd sem nefnist Hvar er draumurinn og er byggð á tónlist Sálarinnar hans Jóns míns.
Ástrós Sigurjónsdóttir - Betra með þér
Betra með þér er nýtt lag eftir söngkonuna og lagahöfundinn Ástrósu Sigurjónsdóttur. Það er unnið í samstarfi við Jóhannes Ágúst. Þau hafa gefið út nokkur lög saman, meðal annars Litblind og Höfin blá sem vakið hafa athygli. Lagið fjallar um að gefa ástinni séns þrátt fyrir að hafa brennt sig á henni áður.
AWÖKEN - HEIM
Hljómsveitin Awöken hefur sent frá sér lagið Heim sem fjallar um von dúettsins um að fólk vakni og fari í ferðalag með þeim inn í bjarta þúsund ára framtíð Íslands.
Undiraldan á sænska plötuspilaranum