Sænski leikarinn Alexander Skarsgård verður heiðursgestur á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík 2026, RIFF. Hann tekur við heiðursverðlaunum hátíðarinnar í ár fyrir framúrskarandi listfengi. Skarsgård verður einnig viðstaddur frumsýningu myndarinnar Wicker. Hann leikur aðalhlutverk myndarinnar sem er í leikstjórn Alex Huston Fischers og Eleanor Wilson.
RIFF verður sett í Háskólabíói fimmtudaginn 24. september.
Kemur úr stórri leikarafjölskyldu
Skarsgård er einn þekktasti leikari Svía og kemur úr mikilli leikarafjölskyldu. Fjórir bræður hans hafa getið sér gott orð fyrir leik og ekki síst faðir þeirra, Stellan.
Í tilkynningu segir að Skarsgård hafi á síðustu tveimur áratugum skapað sér fjölbreyttan feril, bæði í sænskri kvikmyndagerð og á alþjóðlegum vettvangi.
Hefur hlotið bæði Emmy- og Golden Globe-verðlaun
Hann byrjaði að leika á barnsaldri í Svíþjóð en öðlaðist heimsfrægð 2008. Þá lék hann Brad ,,Iceman Colbert" í þáttunum Generation Kill og tók að sér hlutverk vampírunnar Eric Northman í sjónvarpsþáttunum True Blood.
Fyrir leik sinn sem Perry Wright í Big Little Lies hlaut Skarsgård bæði Emmy- og Golden Globe-verðlaun og þá vakti hann mikla athygli sem milljarðamæringurinn Lukas Matsson í Succession.
,,Einn þekktasti, virtasti og fjölhæfasti leikari Svíþjóðar"
Hlutverkin á hvíta tjaldinu eru líka þó nokkur. Hann lék eitt af aðalhlutverkunum í Melancholia frá 2011 eftir Lars von Trier og hann brá sér í hlutverk Tarzans í kvikmyndinni The Legend of Tarzan frá 2016.
Kvikmyndin The Northmen, sem Robbert Eggers leikstýrði og skrifaði handritið að ásamt Sjón, skartaði Skarsgård í aðalhlutverki.
,,Með sterkri nærveru og óvenjulegu hlutverkavali hefur Skarsgård skipað sér í hóp eftirtektarverðustu leikara sinnar kynslóðar og er tvímælalaust í dag einn þekktasti, virtasti og fjölhæfasti leikari Svíþjóðar á alþjóðavettvangi," segir í tilkynningu frá RIFF.