Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Leigusamningurinn hljóðar upp á tæplega 39 milljónir króna á mánuði fyrir rúmlega tíu þúsund fermetra, eða samtals rúmlega níu milljarða króna á næstu tuttugu árum miðað við verðlag dagsins í dag og án tillits til vísitölubreytinga.
Samningurinn var gerður 9. september 2024, rúmum einum mánuði áður en boðað var til þingkosninga um haustið 2024. Hann var gerður að undirlagi heilbrigðisráðuneytisins en Willum Þór Þórsson var heilbrigðisráðherra á þessum tíma.
Eigendur hússins eru að hluta til þeir sömu og eiga einkarekna heilbrigðisfyrirtækið Heilsuvernd sem rekur hjúkrunarheimili í húsinu í dag fyrir íslenska ríkið. Þetta eru þau Sturla Björn Johnsen og Lilja Þórey Guðmundsdóttir, sem er eiginkona framkvæmdastjóra Heilsuverndar, Teits Guðmundssonar, en félög þeirra eiga 50 prósent í húsinu. Hin 50 prósentin eru í eigu félaga fjárfestanna Kristjáns Grétarssonar og Magnúsar Ármann.
Fyrirtæki þessara fjögurra aðila sem eiga húsið í Kópavogi heitir Súlur Reykjavík ehf. Það keypti húsið á tæplega 3,5 milljarða króna í október 2024 samkvæmt þinglýstum kaupsamningi.
Fjallað er um þennan leigusamning og þjónustusamninginn við Heilsuvernd sem gerður var í mars á þessu ári í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér:
Íslenska ríkið gerði 20 ára óuppsegjanlegan leigusamning við eigendur fasteignar í Urðarhvarfi 16 þar sem í dag er rekið hjúkrunarheimili. Teitur Guðmundsson hjá Heilsuvernd svarar spurningum um samningana um hjúkrunarrýmin.
Teitur segir samninginn gerðan eftir útboð
Íslenska ríkið var því búið að gera leigusamninginn við eiganda hússins þegar heilbrigðisráðuneytið og Sjúkratryggingar Íslands gerðu samning við Heilsuvernd í mars á þessu ári þar sem samið var um rekstur 100 hjúkrunarrýma til fimm ára í húsinu.
Teitur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Heilsuverndar og eiginmaður eins eigenda hússins í Urðarhvarfi, segir ekkert óeðlilegt að eigendur fasteignarinnar í Urðarhvarfi og eigendur Heilsuverndar séu að hluta til þeir sömu. ,,Ég held að það geti alveg verið það. Ég sé í sjálfu sér ekkert á móti því að rekstraraðili sem hefur ákveðna hugsjón og ákveðna sýn hvernig hann vilji gera hlutina þá geti hann haft einhverjar nálganir á því hvernig það geti orðið. Mörg af þessum heimilum sem eru úti í umhverfinu okkar eru í eigu þeirra sem reka. Þau sem eru í byggingu eru líka að verða í eigu þeirra sem reka þau. Flest verkefni eru samt þannig að það eru fasteignafélög eða stærri aðilar sem eiga þau," segir Teitur.
Hann segir að reynslan af rekstri hjúkrunarrýmanna í Urðarhvarfi hafi hingað til verið góð og að það hafi verið full nýting á þessum 100 hjúkrunarrýmum hingað. Hjúkrunarrýmin hafa nú verið í notkun í rúmlega hálft ár.
Samningarnir um hjúkrunarrýmin voru gerðir til að létta álagi á Landspítala, til að reyna að leysa hinn svokallaða fráflæðisvanda. Þessi vandi snýst um það að ekki eru til hjúkrunarrými fyrir langveikt fólk og aldrað sem dvalið hefur á Landspítala og hefur það því þurft að dvelja þar lengur en ella þrátt fyrir að þurfa ekki bráðaheilbrigðisþjónustu. Allir þeir sem dvelja í hjúkrunarrýminu í Urðarhvarfi koma því frá Landspítala, segir Teitur.
Langir leigusamningar eins og myllusteinar
En hvaða máli skiptir þetta eiginlega?
Fyrir utan hið augljósa að opnun fleiri hjúkrunarrýma getur haft jákvæð áhrif á Landspítala og áðurnefndan fráflæðisvanda hefur oft verið fjallað um slíka langa leigusamninga sem ríkið og opinberir aðilar hafa gert við einkaaðila í gegnum tíðina.
Á árunum fyrir og eftir íslenska efnahagshrunið var talsvert fjallað um slíka leigusamninga, meðal annars samning sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins gerði um leigu á heilsugæslu í Glæsibæ í Reykjavík. Með árunum kom í ljós að langtímaleigusamningar höfðu ekki reynst hagstæðir fyrir hið opinbera. Í dæminu um Glæsibæ fór samningsgerðin fram í heilbrigðisráðuneytinu en leigutakinn var Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins. Ráðuneytið bar því ábyrgð á samningnum rétt eins og ráðuneytið ber ábyrgð á samningnum um leigu Urðarhvarfs.
Eftir efnahagshrunið var Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins spurð að því hversu hagstæðir slíkir samningar væru. Í svari frá henni sagði orðrétt: ,,Á tímum skertra fjárheimilda hafa leigusamningarnir því orðið myllusteinar um háls stofnananna."
Í sama svari stofnunarinnar kom fram að ljóst væri að slíkir leigusamningar væru óhagstæðir en að þeir hefðu verið taldir æskilegir á þeim tíma sem þeir voru gerðir: ,,Viðhorfið innan opinbera geirans var á þessum tíma að draga ætti úr opinberum kaupum, byggingum og rekstri á húsnæði og láta aðra aðila sjá um þá þætti."
Hvort þetta verður raunin eða ekki með húsnæði eins og hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi á eftir að koma í ljós með tíð og tíma.