Tónlistarhátíđin Iceland Airwaves hefst formlega á morgun međ opnunarviđburđi á hjúkrunarheimilinu Grund. Halla Tómasdóttir forseti Íslands setur hátíđina og á eftir henni stíga Rakel og Lón á stokk og flytja ljúfa tóna.
Líkt og áđur geta hátíđargestir valiđ úr fjölmörgum viđburđum svo Menningarvefurinn leitađi á náđir nokkurra tónlistarsérfrćđinga á Rás 2 til ađ kanna hvađ vćri efst á baugi hjá ţeim í ár.
Spenntust fyrir Liim
Lovísa Rut Kristjánsdóttir í Popplandi er búin ađ kortleggja tónleikaplaniđ. Hún ćtlar um víđan völl og er spenntust fyrir bandaríska rapparanum Liim.
,,Af íslenskum flytjendum er ég spennt fyrir mörgum. Ég hugsa ađ ég hefji leika á tvíeykinu Marsibil á Rosenberg á fimmtudeginum kl. 19:00. Algjör stemning ađ kíkja á nýja Rósenberg, vonandi verđur einhver ađ laumast til ađ reykja inni. Fer svo beint ađ sjá RAKEL í Iđnó kl. 21:10, gítar og góđur söngur, til í tuskiđ. Ţađan mun ég brokka í Kolaportiđ til ađ sjá Adult DVD klukkan 22:30. Breskt dans-pönk lóđbeint frá Leeds, takk," segir Lovísa og hugsar ađ kvöldiđ endi ţar, ekki nema andinn komi yfir hana og hún kíki á Digital Ísland í Ráđhúsinu.
,,Á föstudeginum ćtla ég ađ sýna mér mildi og mćta ađeins seinna," segir hún, fyrsta mál á dagskrá eru tónleikar ungsveitarinnar Einakróna sem leikur fyrir dansi á Nasa 20:30. Breska sveitin Pollyfromthedirt tređur svo upp á sama stađ 22:30. ,,Ţjóđlagatónlist og lo-fi-pönk, eflaust eitruđ blanda, ţađ verđur ađ koma í ljós. Ef ég verđ ekki orđin syfjuđ ţá ćtla ég ađ ná strákunum í Spacestation upp úr miđnćtti á föstudagskvöldinu en ţeir spila í Ráđhúsinu."
Lovísa Rut gerir ráđ fyrir miklu flakki á fjölbreyttum laugardegi sem hefst međ tónleikum KOIKOI á Lemmy 19:40.
,,Nýjasta platan On Happiness in Dreams er ađ trylla indírokkarana í Evrópu. Ţađan ćtla ég ađ stökkva í Kolaportiđ til ađ sjá Amor Vincit Omnia klukkan 21.00. Vonandi taka ţau uppáhalds lagiđ mitt, Ber. Og ţar dvel ég lengur til ađ sjá bandaríska rapparann Liim sem tekur viđ af Amor. Tyler, The Creator hefur lagt blessun sína yfir hann, sem er grćnt ljós í mínum bókum. 21 árs Brooklyn-drengur í Kolaportinu, búmm. Ég nć svo kannski 2-3 lögum međ Birni áđur en ég ţarf ađ skokka yfir í Iđnó til ađ sjá David Bay sem hefur leika á miđnćtti. Og ţegar hann hefur lokiđ sínu setti ćtla ég ađ ţakka kćrlega fyrir mig og segja ţetta gott."
Öfgahljómsveit frá Kanada og bíó um Íslandsvin
Andri Freyr Viđarsson í Morgunverkunum ćtlar ađ sćkja fjölbreytta viđburđi í vikunni. Strax á fimmtudag ćtlar ađ kíkja á tónleika međ ,,öfgahljómsveitinni" PISS frá Kanada, eins og hann orđar ţađ. Ţetta er hávćrt band á mörkum nokkurra tónlistarstefna sem blandar saman tónlist, ljóđlist, gjörningalist og ólíkum tegundum sjónlista á tónleikum sínum.
Nćsti viđburđur verđur líklega ekki ólíkari Kanadamönnunum í PISS en á föstudag ćtlar Andri Freyr ađ hlýđa á Júníus Meyvant í Fríkirkjunni en hann ţarf ekki ađ kynna fyrir lesendum.
Laugardagurinn hefst svo snemma í Bíó Paradís, í ţađ minnsta á Airwaves-skalanum. Ţar verđur heimildarmyndin Radioheart á dagskrá klukkan 15. Hún fjallar um útvarpsmanninn Kevin Cole og ástríđu hans fyrir tónlist. Hann hefur um langt árabil starfađ á KEXP í Seattle, útvarpsstöđ sem Airwaves-gestir ćttu margir hverjir ađ kannast viđ. Međal viđmćlenda í myndinni eru Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Ţórhallsson úr Of Monsters and Men en KEXP sendi eftirminnilega út tónleika sveitarinnar á Kex Hostel á Airwaves 2011.
Ţađ er ekki útilokađ ađ Andri Freyr rekist svo á Lovísu Rut á laugardeginum ţví hann ćtlar ekki ađ láta sig vanta á tónleika Liim í Kolaportinu.
Airwaves-helginni lýkur svo í Eldborg á sunnudag. Ţar ćtla The Streets ađ flytja plötuna A Grand Don't Come for Free í heild sinni og ţađ í fyrsta sinn á sviđi. Eftir hlé mega gestir svo eiga von á helstu smellum af ferli ţessarar ástsćlu bresku hip-hop sveitar.
Tvćr sveitir sem sigruđu Músíktilraunir - međ rúmlega 20 ára millibili
Rokklandsstjórinn Ólafur Páll Gunnarsson býđur líka upp á ţétta dagskrá yfir ţessa Airwaves-helgi. Međal ţeirra atriđa sem hann setur á blađ eru tónleikar sigurvegara síđustu Músíktilrauna, progrokksveitarinnar Falinn Gjóđur. Ţetta efnilega band tređur upp á Lemmy á fimmtudagskvöld klukkan 19:40.
Ţađan er förinni heitiđ í Ráđhúsiđ ţar sem ađrir sigurvegarar Músíktilrauna ćtla ađ telja í klukkan 21:30, hljómsveitin MAMMÚT. Kvöldinu lýkur svo í Iđnó ţar sem ástralska indírokksveitin The Gnomes leikur fyrir dansi. Ţetta er ung sveit sem er innblásin af gömlu rokki.
Föstudagskvöld Óla Palla byrjar í Ráđhúsinu 19:10 á tónleikum indírokkaranna í Oyama. Hitt bandiđ á međmćlalistanum fyrir föstudaginn tređur einnig upp í Ráđhúsinu, ţađ eru rokkararnir í Agent Fresco.
Laugardagurinn er álíka ţéttur og fimmtudagurinn hjá Óla Palla, međ ţrennum tónleikum. Fyrst á lista er fjölskylduţjóđlagasveitin Blood Harmony sem leikur ljúfa tóna frá 19:30 á Rosenberg. Nćstur á dagskrá er Bjarni Daníel sem byrjar 20:10 í Ráđhúsinu. Rapparinn Birnir lokar svo kvöldinu á lista herra Rokklands. Hann kemur fram í Kolaportinu 22:50.