RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Jörðin undir fótum okkar verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna

Heimildarmyndin Jörðin undir fótum okkar verður framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna 2027. Í myndinni, sem er í leikstjórn Yrsu Roca Fannberg, er sjónum beint að lífinu á hjúkrunarheimilinu Grund við Hringbraut í Reykjavík.

Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían valdi myndina úr flokki gjaldgengra mynda. Í dómnefndinni sátu fulltrúar helstu fagfélaga íslensks kvikmyndagerðarfólks, fulltrúar kvikmyndahúsa, kvikmyndagagnrýnenda og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.

Í myndinni er fjallað um hversdagslífið á Grund og fólkið sem þar býr.

,,Þessi augnablik virka sérstaklega náttúruleg og einstök, eins og þau hafi verið fönguð fyrir algjöra tilviljun," sagði Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar á Rás 1, þegar hann fjallaði um myndina í október 2025.

03.09.2026 13:12


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000135
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.