|
|
 |
|
| |
Fyrsta dauðsfallið vegna mislinga í 30 ár í New York Barn í New York-ríki í Bandaríkjunum lést nýlega vegna mislinga. Það er fyrsta dauðsfallið í ríkinu í 30 ár, tilkynntu yfirvöld í gær. Ríkisstjórinn lýsti yfir neyðarástandi í október eftir að sjúkdómurinn hafði greinst þar og í næstu ríkjum. Útbreiðsla mislinga hefur ekki verið meiri í Bandaríkjunum í 35 ár. Sjúkdómurinn hefur greinst í 47 ríkjum. Árið 2000 lýstu bandarísk yfirvöld yfir að tekist hefði að uppræta sjúkdóminn. Árin áður höfðu bólusetningarherferðir gengið vel. Viðsnúningurinn nú er rakinn til vaxandi vantrúar á bólusetningu og í garð heilbrigðisyfirvalda. Mislingaútbrot á baki barns. Mynd úr safni.Shutterstock / Phichet Chaiyabin
03.11.2026 10:07
<< Til baka
|
|
| |
|
| |
Gestir alls
     
Talið frá 06.09.2026 |
| |
|
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af
gamalt.net
veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.
|
| |
|
 |