RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
,,Suðurland er lífæð höfuðborgarsvæðisins"

Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstunni. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvort hægt sé að koma til móts við þá gagnrýni, meðal annars hvort náttúrupassinn gildi á fleiri staði. Í drögum að frumvarpinu er lagt til að erlendir ferðamenn greiði 4.500 krónur fyrir náttúrupassa sem gildir í eitt ár og veitir aðgang að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum.Á ársfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í síðustu viku var þess krafist að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á þessum stöðum. Þá var sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi, líkt og það var orðað í tilkynningu, harðlega mótmælt. Fjallað var um þessi mál í Vikulokunum þar sem rætt var við Harald Þór Jónsson, oddvita í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar.

Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps segist hafa þungar áhyggjur af áhrifum náttúru- og innviðagjalds á Suðurland. Sækja eigi helming nýrra skatttekna í Suðurkjördæmi. Þingmaður kjördæmisins segir skynsamlegt að fá fram greiningar á áhrifunum.

Telur ríkið verða af tekjum við breytingarnar

,,Í boðuðum tekjuöflunaraðgerðum í fjárlagafrumvarpinu, sem eru upp á rúma 22 milljarða, eftir okkar útreikninga, er tæplega helmingur af þeirri upphæð sem á að sækja beint í Suðurkjördæmi. Upphæðirnar eru af svo ofboðslega stórum skala í öllu samhengi að bara boðaður náttúrupassi sem á að innheimta á takmörkuðu svæði á Suðurlandi er hærri upphæð en samanlagðar tekjur allra sveitarfélaga á Suðurlandi af ferðaþjónustu," segir Haraldur sem segir sveitarfélög hafa þungar áhyggjur af stöðunni.Almennt séu sveitarfélögin ekki á móti því að aukin gjaldtaka sé af ferðamönnum. ,,Við teljum aftur á móti, eins og þetta er sett fram, svona muni hafa gríðarlegar afleiðingar á afmörkuðum svæðum og munu leiða til, að okkar mati, tekjuminnkunar fyrir ríkissjóð," segir hann. Mikilvægt sé að vinna saman að breytingum sem þessum. ,,Suðurland er lífæð höfuðborgarsvæðisins þegar kemur að verðmætasköpun, þegar kemur að orkuframleiðslu, hita, mat og svo framvegis," segir Haraldur.,,Mitt uppáhaldsslagorð sem hagsmunaaðili landsbyggðarinnar er að það væri bæði dimmt og kalt í höfuðborginni ef ekki væri fyrir alla orkuframleiðsluna sem á sér stað á Suðurlandi, og ef matvælaframleiðslan væri ekki til staðar líka væru menn líklega svangir," segir hann.

Skynsamlegt að fá fram greiningar

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í kjördæminu, segir að talað hafi verið skýrt um hugmyndir um náttúru- og auðlindagjald í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og í stefnu flokksins. Aðspurð hvort hún sé í rónni með boðaðar breytingar segir hún:,,Ég væri nú að ljúga ef ég segði að ég væri í rónni með þetta en það er auðvitað alveg skýrt að í stjórnarsáttmálanum og í stefnu Samfylkingarinnar var talað um það að innheimta einhvers konar náttúru- og auðlindagjald, náttúrupassa eða eitthvað slíkt. Hér erum við að sjá hugmynd að þeirri útfærslu sem er nú ekki komin enn þá til ríkisstjórnarinnar heldur einungis búin að fara í samráðsferli og er núna hjá ráðherra aftur og við bíðum eftir endanlegri útfærslu," segir Ása.,,Ég heyri það að það er verið að kalla eftir því að þetta muni eiga við fleiri staði heldur en bara þessa þrjá staði í Bláskógabyggð og mér finnst það alveg góð og gild sjónarmið. Ég skil þau alveg en hugmyndin er að það verði framtíðin þannig að þetta fari yfir aðra staði í eigu þjóðarinnar en að það sé verið að byrja með þessum hætti," segir hún og bendir á að það hafi verið lendingin eftir samtal við ferðaþjónustuna.

Á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga var þess krafist að þingmenn Suðurkjördæmis beiti sér, þvert á flokkslínur, fyrir því að afgreiðslu fyrirhugaðra skattahækkana ,,og annarra íþyngjandi breytinga verði frestað þar til óháð og heildstætt mat á samanlögðum áhrifum þeirra á atvinnulíf, fjárfestingar, verðmætasköpun og búsetuskilyrði á Suðurlandi liggur fyrir."Kemur til greina að fara á annan hátt í þetta mál, hægar, vinna greiningu á því hvernig þetta snertir þitt kjördæmi?,,Ég get nú ekki alveg svarað fyrir það. Þetta er hjá ráðherra núna en mér finnst alveg skynsamlegt að fá fram greiningar á þessu og það liggja nú til einhverjar greiningar en það er verið að kalla eftir frekari og ítarlegri greiningum. Við sjáum hvað ráðherra gerir," segir Ása.

Nánar var rætt við Harald Þór og Ásu Berglindi í Vikulokunum. Viðtalið má sjá í spilara hér að ofan.

03.11.2026 12:18


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.