RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,0°C
Stykkishólmur: 5,1°C
Ísafjördur: 5,9°C
Blönduós: 4,5°C
Akureyri: 8,0°C
Egilsstadir: 7,1°C
Höfn: 5,7°C
Selfoss: 4,0°C
Hveravellir: -0,2°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
Pólitíkin þvælist fyrir í samgöngumálum

Uppbygging samgönguinnviða og breyting á ferðavenjum er langhlaup og margt spilar inn í það hvort fólk getur telur sig geta notað aðra ferðamáta en einkabíl. Þó að pólitíkin sé nauðsynleg, þar þurfi að taka ákvarðanirnar, þá þvælist hún á köflum töluvert fyrir í uppbyggingu. Þetta segir Lilja Guðríður Karlsdóttir, samgönguverkfræðingur og framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu. Rætt var við Lilju á Morgunvaktinni í morgun um nýlegar kannanir á ferðavenjum og virka ferðamáta, og um samgönguinnviði á höfuðborgarsvæðinu.

,,Við erum með sex sveitarfélög hérna og það er ekkert launungarmál að mér finnst það galið sem samgönguverkfræðingi að þurfa að fara með verkefni fyrir sex skipulagsráð, sex bæjarstjóra. Þetta tekur alveg óheyrilega langan tíma, pólitíska ferlið í þessu." Hún starfaði í Danmörku um sjö ára skeið og segir breytingar sem hafi tekið mánuð í ferli í stærri borgum þar geta tekið upp undir hálft ár hér á landi. ,,Það sem manni sárnar kannski sem sérfræðingi er að sjá þegar hlutir tengdir samgöngum, eitthvað sem skiptir litlu máli, er notað í pólitískar keilur í kosningabaráttu og annað."

Umræða um samgönguinnviði er oft skökk, segir Lilja G. Karlsdóttir samgönguverkfræðingur. Það sé tabú að ræða um lest til Keflavíkur en Sundabraut eigi að leysa allan vanda, þó að miklu fleiri séu á fyrrnefnda svæðinu.

Í rannsókn sem Háskóli Íslands framkvæmdi og var kynnt í september hjá Reykjavíkurborg kom fram að þriðjungur Reykvíkinga sem nota einkabíl til og frá vinnu væri til í að nota frekar aðra samgöngumáta. Stærsta hindrunin sem var nefnd var að það tæki of langan tíma.

Lilja segir rannsóknir sýna það endurtekið að fólk hafi ekki áhuga á að nota meira en 30 mínútur af tíma sínum í að ferðast til vinnu og annað eins til baka. Rannsóknir hennar í mörgum landshlutum hér á landi sýni það sama. Þá hafi fólk verið spurt hver ferðatíminn væri ef það gæti ráðið honum sjálft. ,,Fólk vildi helst geta verið minna en fimm mínútur í vinnuna. Þannig að það er rosaleg löngun hjá fólki í að nota minna af sínum tíma í samgöngur heldur en það þarf að gera í dag, og það gerum við ekki með því að byggja alltaf hverfi sem eru lengra og lengra í burtu og senda fólk lengra og lengra, heldur með því að styrkja nærumhverfið og bjóða upp á meiri þjónustu í hverfunum."

Kannanir sýni að bílnotkun sé minni í þéttbýlustu hverfunum, skipulag hverfa og nærþjónusta hafi áhrif. ,,Þú hefur tilhneigingu til að nota bílinn minna ef þú getur labbað út í búð, það er rosa þægilegt, en það eru bara margir sem geta það ekkert." Samgöngur séu í eðli sínu flóknar og margir þættir spili inn í.

Sundabraut leysi allan vanda en lest til Keflavíkur tabú

Lilja segir einnig að Íslendingar hafi ekki verið góðir í því að safna upplýsingum. Þannig sé til dæmis ekki vitað hversu margir Hafnfirðingar eða Akurnesingar vinna í Reykjavík. Nú sé þó unnið að því að safna gögnum af þessu tagi. ,,Þetta spilar líka inn í hvernig ákvarðanir þú tekur. Ég get alveg nefnt hitamál í samgöngum, annars vegar Sundabraut og hins vegar lest til Keflavíkur." Þegar komi að Sundabraut verði til sú orðræða að Sundabraut leysi öll okkar vandamál.

,,Ef maður horfir bara kalt á höfuðborgarsvæðið, ef við tökum fólk sem býr í Grafarvogi, Akranesi, Borgarnesi og þar þá eru það um 30 þúsund íbúar og umræðan er sú að Sundabrautin geri allt og pólitíkin þorir ekki að ræða neinar aðrar lausnir en akkúrat þessa Sundabraut. Það má ekki tala um hana í bútum, að byrja á brú upp í Grafarvog. Sjá hverju það skilar, heldur þarf þetta að vera í heilu lagi á meðan það er algjört tabú að tala um lest til Keflavíkur sem pólitíkus, sér maður. Það er bara vitleysa. En vitið þið hvað eru margir sem búa á Suðurnesjunum og ef við tölum um Garðabæ og Hafnarfjörð með í því?" spyr Lilja og svarar svo ,,þetta eru yfir 80 þúsund manns á þessu svæði. Þið sjáið hvað umræðan er skökk. Sundabraut á alveg rétt á sér og leysir svakalegan vanda sérstaklega upp í Grafarvog, en það má ekki ræða hitt þó það æpi á mann að það er miklu meiri fjöldi þar sem myndi geta nýtt þá innviði."

Morgunvaktin er á dagskrá Rásar 1 alla virka morgna. Hlusta má á viðtalið við Lilju G. Karlsdóttur í spilaranum hér að ofan.

03.11.2026 14:22


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001175
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.