Auðgun íslenskrar tungu og bókmennta vindur fram af umtalsverðum krafti nú um stundir, hvað sem líður úrtölum öllum um hnignandi læsi barna. Mikill áhugi ungs fólks á ritlist er til vitnis um að hin svokallaða unga kynslóð okkar tíma hefur áhuga og nennu til að lesa og skrifa á íslensku og einnig hafa margir innflytjendur bæst við og skrifa á íslensku líka. Að auki virðist vera töluverð gróska í þýðingum á íslensku, sum forlög eru með áskrifendur eins og til að mynda Angústúra sem hefur einbeitt sér að bókum úr fjarlægari heimshornum og svo hefur Ugla útgáfa gefið út fjöldann allan af þýðingum á undanförnum árum, og allmarga Nóbelsverðlaunahafa þar á meðal. Hermann Hesse hefur nú bæst í hópinn þar, en áður hafa komið út eftir hann hjá Ormstungu Sléttuúlfurinn og Siddartha.
Nóvellan Síðasta sumar Klingsors var rituð sumarið 1919, skömmu eftir lok heimsstyrjaldarinnar miklu sem var af mörgum talin marka nánast endalok vestrænnar siðmenningar, eins og kemur reyndar fram hjá Klingsor sjálfum í samræðum við vini hans:
Hjá okkur í gömlu Evrópu er allt það dautt sem áður var gott og tilheyrði okkur; fallega skynsemin okkar hefur breyst í vitfirringu, peningarnir okkar eru úr pappír, vélar okkar geta aðeins skotið og sprengt, listir okkar eru sjálfsmorð.
Þegar þessi orð eru rituð eru þau kannski ekki svo fjarri lagi, það átti eftir að vera háð önnur heimsstyrjöld innan skamms tíma og það er ekki fyrr en að henni lokinni sem Evrópa rís upp úr öskustónni með liðsinni Bandaríkjanna og vinna að nýrri heimsskipan í samkeppni við Sovétríkin og síðar Kína og gömlu nýlendurnar öðlast sjálfstæði hver af annarri.
En kannski voru það einungis Pótemkin-tjöld sem við höfum lifað við undanfarin 80 ár, sjónhverfing í líkingu við þá sem við sáum í kvikmyndinni Matrix. Klingsor lítur að minnsta kosti svo á að Evrópa sé búin að vera þegar árið 1919: ,,Ég er að tala um okkur," svaraði hann, ,,ég er að tala um Evrópu, um hina gömlu Evrópu okkar sem í tvö þúsund ár taldi sig vera höfuð heimsins. Það er á enda."
Þessi orðræða söguhetjunnar endurspeglar niðurbrot vestrænnar siðmenningar að mati margra menntamanna á þessum tíma; Hesse hafði starfað hjá stríðsfangahjálpinni meðan á styrjöldinni stóð og lýsir í merkilegum eftirmála við söguna hvernig blendnar tilfinningar vonleysis og frelsis fóru um huga manna sem sneru af vígvellinum eftir að hafa verið rændir æsku sinni í tilgangslausu blóðbaði, blóðbaði sem átti eftir að endurtaka sig og gerir það enn í dag. Hesse gerði tilraun til að bera orðræðuklæði á vopnin meðan á heimsstyrjöldinni stóð en uppskar aðeins hatur og upphrópanir fyrir það.
Söguhetjan og listmálarinn Klingsor er oft talin bera merki höfundarins að einhverju leyti; Hesse var reyndar alveg frambærilegur málari eins og sjá má af vatnslitamyndunum í bókinni, sem málaðar voru um sama leyti og sagan var skrifuð, eins og þýðandinn Jón Bjarni Atlason rekur í greinargóðum inngangi að verkinu, einnig stendur skáldið Hermann kannski fyrir hinn þáttinn í Hesse sjálfum, en aðrar persónur munu einnig vera dregnar upp eftir vinum hans. Jón Bjarni rekur einnig uppruna nafnsins Klingsors, en það ,,á sér langa sögu í bókmenntum og listum" eins og hann segir, en ,,hann kemur fyrst fram sem illur töframaður í þýska sagnakvæðinu Parzifal eftir Wolfram von Eschenbach frá upphafi 13. aldar".
Klingsor sögunnar sem hér er undir er þó ekki illur enda hefur hann þegar ummyndast í höndum rómantíkera á borð við Novalis. Klingsor er einfaldlega listamaður af ástríðu, expressjónískri ástríðu:
Og nú að stærri litaskissunum, hvít blöð með skærlituðum flötum í vatnslitum: rauða einbýlishúsið úr timbri, eldglóandi eins og rúbín á grænu flaueli, og járnbrúin við Castiglia, rauð á blágrænu bjargi, fjólublá stíflan við hlið hennar, rósrauður vegurinn. Áfram: skorsteinninn á tígulsteinaverksmiðjunni, rauður flugeldur framan við kalda, bjarta laufgrænuna, blár vegvísir, ljósfjólublár himinn með þykku skýi eins og það væri flatt út.
Það ægir saman litum og formum í þessari myndlýsingu, en samt má vel ímynda sér hvað er á hvítu blaðinu. Þessi listræni kraftur er rauður þráður í gegnum söguna og fylgir ástandi Klingsors alla leið í gegn, en við sjáum líka andlegu ástandi hans hraka og ná botni í sjálfsmyndinni sem hann málar rétt áður en hann deyr, aðeins 42 ára gamall:
Hann sá fjölmörg andlit á bak við Klingsor-andlitið í stóra speglinum með heimskulegu rósasveigunum, inn í sitt andlit málaði hann mörg andlit: sæt og undrandi barnsandlit, gagnaugu unglingsins full af draumi og glóð, hæðnisleg augu drykkjumannsins, varir hins þyrsta, þess sem er ofsóttur, þess sem þjáist, leitandans, nautnaseggsins, [...].
Stílkrafturinn í þessum brotum fer ekki framhjá neinum og er honum afbragðsvel komið til skila af þýðandanum. Tengslin við þunglyndi og maníu koma einnig víðar fram, enda hafði höfundurinn sjálfur glímt við þann kvilla. Klingsor verður að lokum ,,sturlaður, eins og allir skaparar eru sturlaðir. Í sturlun sköpunarinnar gerði hann hins vegar allt sem verkið krafðist af honum af óskeikulli hyggni eins og svefngengill". Þetta þætti kannski klisjukennt í dag, en hafa verður í huga að þetta er ritað fyrir meira en hundrað árum. Höfundurinn gerir líka afar vel að vinna framvindu þessarar brotakenndu sögu upp í þennan hátind hennar, ef hátind skyldi kalla.
Það má því segja að Síðasta sumar Klingsors fjalli um ástríðu sköpunarinnar, listarinnar. En hún hverfist líka mjög um dauðann og dauðabeyginn sem Klingsor þjáist af, hann veit að hann er að fara að deyja. Þarna minnir hann á Gustav Aschenbach í Dauðanum í Feneyjum eftir Thomas Mann, þar sem söguhetjan upplifir blossa lífsnautnar í ást sinni á ungum pilti áður en hann deyr í kólerufaraldri í Feneyjum. Hér er kannski ýjað að því með öllum hedonismanum í sögunni og ást á konu sem Klingsor ætlar einungis að mála, ekki að fá til fylgilags við sig, en fyrst og fremst eiga sögurnar þennan dauðabeyg og vissu um komandi dauða sameiginlegar.
Klingsor tekur sér stundum nafn kínversks skálds, Li Po, sem hann hefur mikla aðdáun á og samsamar sig honum á vissan hátt, þar sem skáldskapur hans og tilvera er í einhverjum samhljómi við hans eigin líf og listsköpun. Töframaðurinn, viðmælandi Klingsors er því að tala um hann þegar hann notar nafn kínverska skáldsins hér í samræðu um óttann við dauðann: ,,Þetta er spurning um klukkutíma til að sigrast á óttanum. En Li Tai Po vill það ekki. Li elskar dauðann, hann elskar dauðabeyg sinn, þunglyndi sitt, eymd sína, aðeins óttinn hefur kennt honum allt það sem hann kann og við elskum hann fyrir það."
Það er með ólíkindum hversu víða þessi saga fer og hve margar hugsanir og tilfinningar hún vekur. Það er til fyrirmyndar að fá svona heimsbókmenntir vel þýddar og vel frágengnar á íslensku og það má vel færa rök fyrir því að með þessu sé verið að byggja eina af brjóstvörnum hennar og það brjóstvörn í hærra lagi.
Gauti Kristmannsson, bókmenntagagnrýnandi Víðsjár, fjallar um Síðasta sumar Klingsors eftir Hermann Hesse í þýðingu Jóns Bjarna Atlasonar sem ritar einnig greinargóðan inngang að verkinu.
Gauti Kristmannsson flutti pistil sinn í Víðsjá sem finna má hér í spilaranum. Hann er prófessor í þýðingafræði við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Hann hefur fjallað um samtímabókmenntir í Víðsjá síðustu tvo áratugi.