RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Santé kvartar yfir starfsháttum lögreglu: Segja sum fyrirtæki mega selja áfengi en önnur ekki

Forsvarsmenn netáfengisverslunarinnar Santé hafa kvartað til nefndar um eftirlit með lögreglu (NEL) vegna starfshátta tveggja lögregluembætta.

Annars vegar lýtur kvörtunin að meintu aðgerðarleysi lögreglustjórans á Suðurnesjum við meðferð á kæru Santé á hendur þýska fyrirtækisins Heinemann og hins vegar lýtur hún að rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á smásölu áfengis.

Þá er einnig kvartað vegna almennra starfshátta lögreglu og ósamræmis milli umdæma.

Annað málið óafgreitt en hitt sótt af fullum þunga

Heinemann tók yfir rekstur fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli árið 2025, en Santé kærði fyrirtækið til lögreglu vegna ólögmætrar smásölu á áfengi í fríhöfninni og sagði ósamræmi í beitingu laga óásættanlegt.

Í kvörtuninni bendir Santé á að kæra gegn stórum, erlendum rekstraraðila liggi óafgreidd mánuðum saman á Suðurnesjum, á meðan smærri innlendur aðili sé sóttur til saka af fullum þunga á höfuðborgarsvæðinu.

Arnar Sigurðsson, annar eigenda Santé, segir lögreglustjórann á Suðurnesjum hvorki hafa hafið rannsókn né vísað kærunni frá. Einu viðbrögðin hafi verið óformleg svör um að málið sé enn til skoðunar.

Á meðan hafi rannsókn lögreglu á starfsemi Santé haldið áfram. Þá hafi hann heldur ekki heyrt frá NEL en kvörtunin var send 13. júlí í ár. Formaður nefndarinnar segir meðferðartíma almennt á bilinu 2-3 mánuðir.

Ákært fyrir eina rauðvínsflösku og rútu af bjór

Mál íslenska ríkisins gegn Santé vegna netsölu þeirra á áfengi var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær en frestað til 2. desember.

Arnar og meðeigandi hans, Elías Blöndal Guðjónsson, eru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á sölu áfengis án þess að félög þeirra hefðu leyfi til smásölu áfengis hér á landi. Ákæran lýtur að sölu á einni rauðvínsflösku og einni rútu af bjór, sem samanlagt kostuðu 9.010 krónur. Þá eru þeir einnig ákærðir fyrir peningaþvætti fyrir sömu upphæð.

Í kvörtuninni til NEL er bent á að embættið hafi lýst því yfir að engar frekari ákærur verði gefnar út fyrr en niðurstaða í hliðstæðu prófmáli fyrir Landsrétti lægi fyrir. Það mál snýr að sölu Smáríkisins á einni hvítvínsbelju og er enn óútkljáð. Ákæran á hendur Santé gangi því þvert á yfirlýst verklag.

Segir ríkið hafa málað sig út í horn

Margar netáfengisverslanir hafa skotið upp kollinum á undanförnum árum. Áfengissala í búðum hefur eingöngu verið í höndum ÁTVR. Það er aftur á móti mat netverslananna að netverslun með áfengi sé lögleg samkvæmt EES-samningnum. Hann tryggi að hægt sé að kaupa vörur frá öðrum löndum EES og flytja hingað til lands.

Santé segir tollalög ekki fela í sér undanþágu frá einkarétti hins opinbera til smásölu á áfengi.

Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, og áður Fríhöfnin ehf. í eigu Isavia, hafi haft einkarétt á hefðbundinni smásölu á áfengi. Það hafi verið viðurkennt með skýrum ákvæðum í áfengislögum og lögum um ÁTVR. Stjórnvöld hafi staðfest að rekstur Fríhafnarinnar væri ríkiseinkasala.

Í samtali við fréttastofu segir Arnar sér þykja það skondið að standa í dómsmáli þar sem ákæruvaldið starfi fyrir samkeppnisaðilann: íslenska ríkið. Ríkið sé að hans mati búið að mála sig út í horn.

Ljóst sé að málið sé heit kartafla og enginn stjórnmálaflokkur hafi lagt það á sig að taka málið fyrir. Á sama tíma hafi lögum verið breytt og sala áfengis verið heimiluð á framleiðslustað.

03.09.2026 18:30


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000138
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.