Sumarið 1993 sat Örn á Þjóðskjalasafninu, sem þá var til húsa í Safnahúsinu á Hverfisgötu, og skrifaði lokaritgerð í sagnfræði. Hann og félagi hans ákváðu að skreppa út á tröppur í smá pásu.
,,Þá kemur þáverandi landsbókavörður, Finnbogi Guðmundsson, út til okkar félaganna og spyr okkur hvort okkur vanti vinnu þennan veturinn. Félagi minn segir nei, ég er með vinnu, en ég segi nei, ég er ekki kominn með neitt til að vinna við. Þannig að ég er ráðinn á tröppunum við Safnahúsið, þarna í ágúst 1993."
Starfið fólst aðallega í að taka til í geymslum safnins úti í bæ, sem Finnbogi kallaði útihús.
,,Þannig að ég var ráðinn í hálft starf til að taka til í útihúsunum og raða bókum, bæði uppi á háalofti í Safnahúsinu og í hinum og þessum afkimum þar."
Hefur unnið í öllum deildum safnsins
Landsbókasafn Íslands var stofnað 1818 og Háskólabókasafnið 1940. Þau voru sameinuðust 1. desember 1994 þegar nýkláruð Þjóðarbókhlaða var tekin í notkun.
Örn tók þátt í flutningunum og hefur starfað við safnið síðan.
,,Er fyrstu árin í því sem kallaðist Þjóðdeild, sem er Íslandssafn núna í dag. Og svo fór ég í handritadeild, og þá varð ég síðan sviðsstjóri varðveislusviðs og svo endaði ég sem Landsbókavörður í mars 2025. Þannig að ég er búinn að vera um allt safnið."
Rætt var við Örn Hrafnkelsson í útvarpsþættinum Víðsvegar á Rás 1. Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Í þættinum var flakkað um Þjóðarbókhlöðuna og ýmsir teknir tali.
Örn Hrafnkelsson var skipaður í embætti landsbókavarðar í mars 2025. Ferill hans við safnið nær þó mun lengra aftur.