RUV - RIKISUTVARPID
FRÉTTIR | INNLENT | ERLENT | MENNING | AUÐSKILIÐ | ENGLISH | POLSKI

Skera upp herör gegn hraðtísku og leggja aukagjald á hverja flík

Stjórnvöld í Frakklandi hafa hert reglur um svokallaða hraðtísku. Stefnt er að því að setja sérstakt gjald á hverja flík. Eftir fjögur ár gæti gjaldið verið allt að tuttugu evrur, sem jafngildir um 2.800 íslenskum krónum, á hverja flík. Með þessu vilja stjórnvöld draga úr sölu á ódýrum fatnaði á netinu. Verð í slíkum verslunum er oft mjög lágt og það getur virkað hvetjandi á neytendur að kaupa mikið.

Reglur um gjaldið tóku gildi í fyrradag. Þær eru byggðar á lögum sem voru samþykkt í júní og er sérstaklega beint að fyrirtækjum sem selja ódýr föt á netinu, eins og Shein, Temu og AliExpress.

Níu evra gjald á gallabuxur og 12 fyrir jakka

Á þessu ári verður gjaldið frá hálfri evru fyrir nærföt upp í tvær fyrir stuttermaboli. Gjald fyrir gallabuxur verður níu evrur, sem jafngildir 1.265 íslenskum krónum, og fyrir jakka tólf evrur, jafnvriði rúmlega 1.680 íslenskra króna. Árið 2030 gæti gjaldið verið komið í 19,5 evrur fyrir hverja flík. Það verður þó ekki hærra en sem nemur helmingi af verði vörunnar fyrir skatta.

Stjórnvöld í Frakklandi hafa gagnrýnt aðferðafræði þessara risafyrirtækja sem þekkt eru fyrir að selja ógrynnin öll af ódýrum fötum og ýta þannig undir útbreiðslu hraðtískunnar.

Franska dagblaðið Ouest France hefur eftir viðskiptaráðherra Frakklands, Serge Papin, að fyrirtækin gefi sig út fyrir að standa vörð um kaupmátt neytenda. Þau selji vörur ódýrt og að þær uppfylli iðulega ekki kröfur um gæði og endist stutt.

Frakkar hafa tilkynnt að gjaldið nái ekki til fyrirtækja eins og H&M og Zöru. Gagnrýnendur sögðu að svo virtist vera sem ætlunin væri að hlífa evrópskum fyrirtækjum.

Kínversk yfirvöld segja lögin mismuna fyrirtækjum

Shein, Temu og AliExpress eru kínversk og viðskiptaráðuneyti Kína gagnrýnir nýju reglurnar í Frakklandi harðlega. Ráðuneytið segir að lögin feli í sér mismunun og þau brjóti mögulega gegn meginreglum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar.

Samkvæmt nýju lögunum í Frakklandi verður hraðtíska skilgreind út frá því hversu mikið af hverri flík er sett á markað og hver kostnaður við viðgerð er í samanburði við verð. Upphæð gjaldsins ræðst af þessum tveimur þáttum.

4.700 nýjar vörutegundir á markað daglega

Frakkland er fyrsta landið í Evrópusambandinu sem grípur til ráðstafana gegn hraðtísku. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Shein í lok mars á þessu ári bauð fyrirtækið upp á meira en tvær milljónir vörutegunda. 4.700 nýjar fatategundir bættust við daglega, að því er fram kemur í frétt Reuters.

Rannsóknir hafa sýnt að meira er af eiturefnum í að minnsta kosti hluta af vörum frá Temu og Shein en leyfilegt er í Evrópu. Hér á landi eru dæmi um að verslanir sem selja notuð föt taki ekki við fötum frá þessum tískurisum.

03.09.2026 11:24


<< Til baka
VEÐRIÐ
Reykjavík: 10,2°C
Stykkishólmur: 9,1°C
Ísafjörður: 7,9°C
Blönduós: 9,7°C
Akureyri: 8,5°C
Egilsstaðir: 9,3°C, Skýjað
Höfn: 9,1°C
Selfoss: 10,2°C
Hveravellir: 5,5°C
Nánar á Veðurstofunni

DAGSKRÁ


Sjónvarpið - dagskrá
RÚV 2 - dagskrá
Rás 1 - dagskrá
Rás 2 - dagskrá

GAMALT.NET


Forsíða Gamalt.net
Vísir Gamalt

Gestir alls
000137
Talið frá 03.09.2026
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.