Þó að Demókratar vinni þingkosningarnar í Bandaríkjunum verður ekki auðvelt fyrir þá að ná málum í gegn í þinginu án málamiðlana, segir Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.
Bandaríkjamenn ganga til kosninga á morgun og niðurstöðurnar gætu valdið straumhvörfum í bandarískum stjórnmálum. Kosningar í Bandaríkjunum geta reynst afdrifaríkar fyrir allan heiminn. Kosið verður um öll 435 sætin í fulltrúadeildinni, sem er neðri deild þingsins, og 35 af 100 sætum í öldungadeildinni. Einnig verður kosið um ríkisstjóra á 39 stöðum og á ríkisþing og í sveitastjórnir.
Gætu komið í veg fyrir að Trump komi sínu fólki að
Samkvæmt nýjustu könnunum eru Demókratar með forskot á Repúblikana í nær öllum sjö ríkjunum sem ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta í öldungadeild þingsins.
Nái Demókratar báðum þingdeildum fer í gang ýmis konar rannsóknarvinna og skoðanir á aðgerðum forsetans að sögn Svanhildar. Þá gætu demókratar komið í veg fyrir tilnefningar forseta fyrir dómstóla og æðstu yfirmenn í embættismannakerfinu vegna þess að öldungadeildin þarf að samþykkja þær.
,,Ef þar er ekki meirihluti Repúblikana þá flækist það töluvert fyrir Trump að koma sínu fólki að," segir Svanhildur.
Grunar að fylgi Repúblikana sé ofmetið
Kolbeinn Stefánsson, dósent í félagsfræði við HÍ, segir skoðanakannanir fyrir kosningar síðustu ár hafa vanmetið fylgi Repúblikana.
,,En mig grunar að í þetta sinn gæti það farið á hinn veginn, að það sé verið að ofmeta fylgi Repúblikana á þessum tímapunkti. En það náttúrlega ræðst allt á kjörsókninni," segir Kolbeinn.
Það er ekki nóg að vera með bandarískan ríkisborgarrétt og mæta á kjörstað til þess að kjósa heldur þurfa kjósendur að skrá sig fyrir kosningar í Bandaríkjunum.
Birna Anna Björnsdóttir rithöfundur býr í New York og kýs á morgun. Hún segir miserfitt að skrá sig eftir því hvar maður er í landinu, sums staðar sé fólki viljandi gert erfitt fyrir að skrá sig til kosninga.
Svanhildur Þorvaldsdóttir, Kolbeinn Stefánsson og Birna Anna Björnsdóttir voru gestir í Silfrinu í kvöld ásamt Sigríði Rut Júlíusdóttur héraðsdómara og Björgvini Guðmundssyni, eiganda almannatengslafyrirtækisins KOM.
Dósent í stjórnmálafræði við HÍ segir það ekki verða auðvelt fyrir Demókrata að koma málum í gegnum þingið þó að þeir fái þar meirihluta. Bandaríkjamenn ganga til þingkosninga á morgun þar sem kannanir spá Demókrataflokknum góðu gengi.