RUV - Rikisutvarpid
  Forsída RÚV

FRÉTTIR
Forsída
Innlent
Erlent
Íthróttir
Menning


VEDRID
Reykjavík: 5,1°C
Stykkishólmur: 5,4°C
Ísafjördur: 6,7°C
Blönduós: 5,3°C
Akureyri: 6,6°C
Egilsstadir: 4,9°C
Höfn: 5,6°C
Selfoss: 3,8°C
Hveravellir: 0,4°C


STREYMI
(fyrir nýrri vafra)

Ras 1
Hlusta

Ras 2
Hlusta

Rondo
Hlusta
RUV valmynd Dagskra Utvarp Dagskra Sjonvarp Textavarp Hladvarp Frettir Menning Ithrottir
 
,,Þetta er sannfærandi og hún leikur sér að lesandanum"

Í nýjustu bók Evu Bjargar Ægisdóttur, Þau sem urðu eftir, fylgjumst við með Rakel sem lendir í alvarlegu slysi og þarf því að hætta að vinna. Eftir að hún byrjar að halda úti hlaðvarpi um óleyst mannshvörf fær hún ábendingu um 30 ára gamalt mál þegar unglingsstúlka hvarf í Stykkishólmi.

,,Rakel fer að rannsaka málið og sagan snýst um það hvað varð um þessa stúlku. Svo kynnumst við aðeins einkalífi Rakelar sem fer að slá sér upp með einhverjum manni sem mér fannst nú frekar til óþurftar í þessari sögu," segir Kolbrún Bergþórsdóttir.

Hún var miklu hrifnari af persónunni Ástu sem Rakel á í mestum samskiptum við. Það virðist ekki allt með felldu í hennar lífi.

,,Ásta á til dæmis tvo syni og hún á í afar sérkennilegu og eiginlega óhuggulegu sambandi við annan þeirra. Þannig að mér fannst besti þráður sögunnar vera einmitt Ásta. Hvaða persóna er þetta og hvað er að gerast í hennar lífi?"

Ingibjörg Iða Auðunardóttir segir þetta vel heppnaða spennusögu en hún er sérlegur áhugamaður um hlaðvörp eins og Rakel heldur úti í bókinni.

,,Þetta er sannfærandi og hún leikur sér að lesandanum. Allt í einu er maður kominn inn í eitthvað og manni líður eins og maður hafi gert eitthvað af sér, að hafa trúað öllu sem er sett fram í byrjun og það er vel heppnað. Ég er svo ánægð að fá góða bók eftir Evu því ég hef tröllatrú á henni."

Gagnrýnendur Kiljunnar fjölluðu um bókina Þau sem urðu eftir, nýjustu glæpasögu Evu Bjargar Ægisdóttur. Þær voru sammála um að vel hefði tekist til hjá höfundi.

02.11.2026 10:00


<< Til baka
 
English - Polski - Gamalt.net News in English Wiadomosci po polsku gamalt.net
 
Gestir alls
001180
Talið frá 06.09.2026
 
Þetta vefsvæði er á engan hátt tengt RÚV eða Ríkisútvarpinu ohf. Vefsvæðið er hluti af gamalt.net veffjölskyldunni sem speglar innihald vinsælla íslenskra vefsvæða sem HTML kóða fyrir eldri vafra.